Hafa samband

Íslendingasögur

Vefurinn islendingasogur.is er fjölskyldu- og kennsluvænn fræðsluvefur um miðaldabókmenntir. Texti er saminn af Brynhildi Þórarinsdóttur, rithöfundi og dósent við Háskólann á Akureyri. Vefurinn tengist endursögnum Brynhildar á Íslendingasögunum, Njálu, Eglu og Laxdælu, sem víða eru notaðar í skólakerfinu. Kennsluleiðbeiningar með verkefnum er að finna á kennarasíðu (án endurgjalds) en óska þarf eftir lykilorði með tölvupósti til brynh@unak.is

Ráðgjafi við vefinn er Anna Kristín Þórðardóttir, grunnskólakennari (íslenska á unglingastigi).

Myndskreytingar eru úr fyrrnefndum bókum en höfundur þeirra er Margrét E. Laxness. Um útlit og uppsetningu vefsins sá Dagný Reykjalín hjá Blek.

Smelltu hér til að heimsækja vefinn.